Dagskráin fyrir Menningarnótt er fáanleg fyrir Apple og Android tæki í gegnum hugbúnað sem hlaða má niður ókeypis í gegnum viðkomandi netverslun.
Nýtt dagskrárkerfi okkar leyfir þér að finna og merkja við áhugaverða atburði á mjög einfaldan og skilvirkan hátt. Smellið á "Skoða dagskrá", veljið ykkur atburði með því að "Bæta við" og sjáið svo ykkar eigin persónulegu dagskrá með því að smella á "Mín Menningarnótt".
Skoða DagskráMá bjóða þér að ganga í bæinn á Menningarnótt? Kíkja í vöfflur í Þingholtunum, læra tangó á Hótel Borg, fara á tónleika í Hörpu, þiggja heimboð frá Seattle í Ráðhúsinu, dansa salsa í Iðnó, fá faðmlag á Laugaveginum, fara í goðagöngu um Þingholtin, taka þátt í götu- og garðveislum eða litlum listahátíðum sem leynast víðsvegar í miðborginni? Kynntu þér dagskrána!
Landsbankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi.

Glæsileg flugeldasýning á hafi úti í boði Vodafone slær lokapunktinn á Menningarnótt. Áhorfendur geta notið sýningarinnar frá Arnarhóli, Sæbrautinni, Miðbakkanum, Grandanum og víðar.

Systurborgirnar Reykjavík og Seattle halda uppá 25 ára systrasamstarf sitt á Menningarnótt í Reykjavík. Í tilefni af afmælinu býður Reykjavík Seattle að ganga í bæinn og mun Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur fyllast af fjölbreyttu listalífi frá Seattle fram á kvöld.

Sendiráð Færeyja í Austurstræti stendur fyrir fjölbreyttri dagskrá og býður gestum Menningarnætur að ganga í bæinn. Boðið verður uppá færeyskan mat og drykk, Guðrið Hansdóttir syngur vel valin lög, rithöfundarnir Hanus Kamban og Sólrun Mickhelsen lesa uppúr verkum sínum og margt fleira.