Bílastæðahúsin Stjörnuport og Vitatorg verða opin á Menningarnótt til kl 01:00
Þeir sem eru með P-merki fyrir fatlaða komast inná hátíðarsvæðið. Við bendum sérstaklega á sérmerkt bílastæði fyrir fatlaða er neðst á Skúlagötu og bílastæðahús við Vesturgötu (aðkoma frá hliðinu sem er á Garðastræti/Túngötu).
Vegna Menningarnætur og maraþonhlaups verður akstursleið breytt á þeim leiðum sem ella hefðu ekið um Hverfisgötu og Lækjargötu að og frá Hlemmi. Aðrar leiðir aka á hefðbundinn hátt.
Til kl. 16:00 verður ekið að Melatorgi og snúið við þar. Eftir kl. 16:00 verður ekið eftir Skothúsvegi og Sóleyjargötu að Hlemmi og eftir Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi, Vonarstræti og Suðurgötu í áttina frá Hlemmi.
Síðustu ferðir fara frá Hlemmi og Vonarstræti um kl. 01:00.
Hægt verður að sigla með Sérferðum á milli Sundahafnar og Hörpu á Menningarnótt. Tilvalið er að skilja bílinn eftir á bílastæðum við Sundahöfn og skella sér siglandi í bæinn!
Siglt er frá Skarfabakka í Sundahöfn og að Hörpu á eftirtöldum tímum:
19:30 Harpa - Sundahöfn
20:00 Sundahöfn - Harpa
20:30 Harpa - Sundahöfn
21:00 Sundahöfn - Harpa
21:30 Harpa - Sundahöfn
22:00 Sundahöfn - Harpa
22:30 Harpa - Sundahöfn
23:00 Sundahöfn - Harpa
23:30 Harpa - Sundahöfn
24:00 Harpa - Sundahöfn
Verð: 1000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn. Nánari upplýsingar í síma Sérferða: s. 892 0099
Fram til kl. 23:00 verða leigubílar neðst á Hverfisgötunni. Eftir flugeldasýninguna verða þeir á hefðbundnum stað við Mæðragarðinn í Lækjargötu.
Upplýsingaþjónusta í gegnum Símaver Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 er alltaf opin og sérstök svörun vegna Menningarnætur verður frá kl. 13:00-23:00. Eftir það tekur við kvöld-og helgidagasímsvörun. Í neyðartilfellum skal alltaf hringt í 112.
Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Ingólfsnausti, sími 590 1550 er opin til kl. 22:00
Athvarf fyrir týnd börn er í bækistöð Lögreglunnar og Slökkviliðs við Ingólfsstræti handan Arnarhóls. Sími 411 11 11 og 112 eftir kl. 23:00. Gott er að hafa börnin merkt með símanúmeri forráðamanna.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, lögreglan og björgunarsveitir verða með viðbúnað og sameiginlega aðstöðu við Ingólfsstræti handan Arnarhóls. Aðgerðum verður stjórnað úr stjórnstöðvarbifreið Flugbjörgunarsveitarinnar en á staðnum verða sjúkra-, slökkvi- og lögreglubifreiðar. Gönguhópar lögreglu, Rauða krossins og björgunarsveita verða gerðir út þaðan. Sjúkragámur verður á staðnum og þar verður einnig aðstaða til að annast týnd börn. Vel merkt körfubifreið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins verður staðsett þar svo auðvelt verður að sjá hvert á að leita ef eitthvað bjátar á. Í neyðartilvikum ber að hringja í neyðarlínuna, 112.
Götulokanir eru í gildi frá kl. 07 að morgni laugardagsins 20. ágúst og framyfir miðnætti. Sjá nánar kortið hér fyrir ofan.
Útisalerni eru staðsett:
Almenningssalerni eru við Ingólfstorg, Hlemm, Lækjargötu, Vegamótastíg og Frakkastíg. Salernin eru opin frá 11:00 24:00 á Menningarnótt nema annað sé tekið fram.
Öll sölustarfsemi á Menningarnótt er óheimil. Lögreglan verður látin vita af þeim sem ekki virða þessa reglu.
Látum ekki okkar eftir liggja - skilum borginni hreinni.
Munum eftir dýrunum og gerum ráðstafanir þeim til verndar á meðan flugeldasýningunni stendur.
Geymum hundinn heima á Menningarnótt. Sumir eru hræddir við hunda og mörgum hundum líður ekki vel í margmenni og hávaða.
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar.
Höfuðborgarstofa, Aðalstræti 2, sími 590 1500 hefur umsjón með Menningarnótt.
Í stjórn Menningarnætur sitja: Einar Örn Benediktsson, formaður, Áslaug Friðriksdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Óttarr Proppé og Sif Gunnarsdóttir.
Verkefnastjórar eru Auður Rán Þorgeirsdóttir og Guðríður Inga Ingólfsdóttir.
Borgarmynd sá um gerð dagskrársíðunnar og annað kynningarefni Menningarnætur, ásamt Marandros og 25 Great Circles.
Landsbankinn er máttarstólpi Menningarnætur og flugeldasýningin er í boði Vodafone. Fjölmargir hafa stutt hátíðina með ýmsum hætti og verkefnisstjórn Menningarnætur þakkar öllum sem lögðu hönd á plóg.